Hvað gerir Bláa Lónið að einu af undrum veraldar?
Uppruni vatns Bláa Lónsins er jarðsjór sem finnst á 2000 metra dýpi.
Uppruni vatns Bláa Lónsins er jarðsjór sem finnst á 2000 metra dýpi. Jarðsjórinn samanstendur af salt- og ferskvatni og er ríkur af kísli, þörungum og steinefnum.
Bláa Lónið: náttúruundur
Árið 2012 birti tímaritið National Geographic grein um 25 náttúruundur sem vert væri að heimsækja, undir yfirskriftinni Wonders of the World. Vatn Bláa Lónsins var valið á þann lista og er þar í góðum félagsskap, en á listanum voru meðal annars stórbrotnir firðir Noregs, Victoria-fossarnir í Suður-Afríku, áströlsku kóralrifin og Baikal-vatnið í Serbíu.
Bláa Lónið: töfrar vatnsins
Hvers vegna hlaut Bláa Lónið þessa viðurkenningu? Svarið liggur í jarðsjónum.
Bláa vatnið sem er einkennandi fyrir lónið er um 70% saltvatn og 30% ferskvatn og er ríkt af kísli, þörungum og steinefnum. Þessi einstaka samsetning sem verður til djúpt í berglögum landsins gerir það að verkum að vatnið hefur einstaklega jákvæð áhrif á húðina og bæði styrkir hana og endurnærir.
Upplifðu töfra Bláa Lónsins á eigin skinni og njóttu þín í einu af undrum veraldar.
Talks about