Endurnærandi ævintýraferð um Reykjanesið

Nágrenni Bláa Lónsins er ríkt af fádæma fegurri náttúru og merkum og skemmtilegum stöðum fyrir fjölskylduna að skoða.

ÁHUGAVERÐIR STAÐIR

Seltún Seltún er tilkomumikið og litríkt háhitasvæði sem minnir helst á aðra plánetu.  Göngupallar gera þér kleift að fara í töfrandi ferðalag innan um búbblandi leirhveri, gufuaugu, steinefnaútfellingar og sjóðandi vatnspolla. Það má því miður ekki hoppa í þessum pollum.

Áætluð akstursfjarlægð frá Bláa Lóninu: 30 mínútur

Gunnuhver Gunnuhver er stærsti leirhver á Íslandi og þar er allt krökkt af undursamlegum jarðhitafyrirbærum. Gufa og rokgjarnir vökvar stíga upp úr steinefnaríkum jarðvegi þar sem göngupallar liggja þvert og endilangt í hrjúfu landslaginu. Hverinn er nefndur eftir konur nokkurri sem hét Guðrún og gekk áftur á hversasvæðinu. Sagan segir að presti einum hafi síðan tekist að senda draug Guðrúnar í hverinn og festa hana þar.

Áætlaður aksturstími frá Bláa Lóninu: 20 mínútur

Brimketill Mikilfengleg, náttúruleg laug með kristaltærum sjó sem ógnarkraftur hafsins hefur mótað í klettavegginn. Brimketill minnir helst á heitan pott í sjávarborðinu og þegar staðið er á útsýnispallinum fyrir ofan verða gestir gjarnan fyrir hressandi sturtum frá öldum Norður-Atlantshafsins. Brimketill hefur einnig verið kallaður Oddnýjarlaug eftir nátttrölli einu sem baðaði sig í lauginni og varð að steini. Hér gera ólgandi sjávarföllin það að verkum að gæta þarf ítrustu varúðar.

Áætlaður aksturstími frá Bláa Lóninu: 15 mínútur

Reykjanesviti Reykjanesviti er elsti vitinn á Íslandi, reistur árið 1908. Greitt var fyrir byggingu vitans með svokölluðu vitagjaldi sem skipum landsins var gert að greiða. Vitinn gnæfir 70 metra yfir sjávarmáli á mörkum eldstöðvakerfa Reykjaness og hins óendanlega bláa sjóndeildarhrings Norður-Atlantshafsins, og hefur þessi táknræna bygging áhrifamikla og róandi nærveru í tilkomumiklu landslaginu. 

Áætlaður aksturstími frá Bláa Lóninu: 25 mínútur

Hvalsneskirkja Kirkjan, sem nú er friðuð, var reist úr byggingarefni úr nærumhverfinu. Útveggirnir eru úr grágrýti (basalti), sem sótt var í nærliggjandi klappir og hoggið til, og innviðir eru að stórum hluta úr rekaviði af ströndinni. Hvalsneskirkja var vígð árið 1887 og hefur síðan þá verið vel við haldið og varðveist einstaklega falleg. Í kirkjugarðinum við hliðina er að finna grafir allt frá 17. öld, merkastur telst legsteinn Steinunnar Hallgrímsdóttur, dóttir Guðríðar Símonardóttur (Tyrkja-Guddu) og séra Hallgríms Péturssonar sálmaskálds sem þjónaði í Hvalsnessókn 1644–1651.

Áætlaður aksturstími frá Bláa Lóninu: 34 mínútur

Stafnes Á 17. og 18. öld var Stafnes einn umsvifamesti útgerðarstaður landsins. Fylgifiskur þess að vera miðdepill skipaumferðar var óhjákvæmilega sá að mörg skip fórust eða skemmdust í skerjunum við Stafnes. Árið 1928 strandaði togarinn Jón forseti við Stafnes og 15 af 25 mönnum í áhöfn hans fórust. Slys þetta segja margir að hafi verið íkveikjan að stofnun Slysavarnafélags Íslands.  Við Stafnes stendur 8 metra hár, fallega appelsínugulur viti sem stingur í stúf við náttúrulega liti landslagsins, tilvalinn bakgrunnur fyrir fjölskyldumynd. 

Áætlaður aksturstími frá Bláa Lóninu: 36 mínútur

Krýsuvík Ævintýralegt jarðhitasvæðið í Krýsuvík er fullt af lífi með vatnshveri, sjóðandi leirhveri og gufuaugu; það skartar fallegum rauðum, gulum og grænum litum hins steinefnaríka jarðvegs. Í aðeins örfárra kílómetra fjarlægð má finna tvö af glæsilegri stöðuvötnum landsins, Grænavatn og Kleifarvatn, sem bæði eru í leifum sprengigíga sem hafa orðið til í eldgosum.

Áætlaður aksturstími frá Bláa Lóninu: 31 mínútur

Brúin milli heimsálfa Standandi þvert yfir Mið-Atlantshafshrygginn – á flekaskilum Norður-Ameríku og Evrasíu – býður þessi göngubrú gestum sínum að ganga á milli tveggja heimsálfa. Einnig má ganga um sprunguna undir brúnni sem veitir alveg einstaka og undarlega friðsæla upplifun á jarðeðlisfræðilegum kröftum móður jarðar.

Áætlaður aksturstími frá Bláa Lóninu: 22 mínútur

Kleifarvatn Kleifarvatn er stærsta stöðuvatnið á Reykjanesskaganum. Ekkert vatn sést renna í eða úr Kleifarvatni þar sem megnið af vatninu streymir inn og út neðanjarðar. Útsýnið við vatnið er ótrúlega heillandi og hraunið í nærumhverfinu sem hefur mótast af eldgosum og jarðskjálftum er engu öðru líkt. Þjóðsögur segja að ormskrímsli búi í vatninu og hægt sé að sjá til þeirra ef vel er að gáð.

Áætlaður aksturstími frá Bláa Lóninu: 36 mínútur

GÖNGUFERÐIR

Frá Bláa Lóninu er hægt að fara í stuttar og fjölskylduvænar gönguferðir um nærumhvefið.

Söguganga Létt og skemmtileg ganga um nánasta umhverfi Bláa Lónsins; hér er gengið meðfram heillandi vatnssýn framan við mannvirki Bláa Lónsins sem leið liggur gegnum 2.000 ára gamla hraunbreiðu. Gangan veitir þér örlitla innsýn í sögu og þróun Bláa Lónsins, henni lýkur í grennd við Silica hótelið og Rannsóknar- og þróunarmiðstöð Bláa Lónsins.

Vegalengd: 1,6 km Tímalengd: 30 mín. Erfiðleikastig: mjög auðvelt

Ganga í Selskóg Í þessum leiðangri er gengið meðfram heillandi vatnssýn framan við mannvirki Bláa Lónsins sem leið liggur gegnum 2.000 ára gamla hraunbreiðu þar til komið er að Silica hótelinu og Rannsóknar- og þróunarmiðstöð Bláa Lónsins. Þaðan er haldið í suður í átt að Selskógi sem er friðsæll skógarlundur við rætur fjallsins Þorbjarnar.

Vegalengd: 4,5 km Tímalengd: 1 klst. 16 mín. Erfiðleikastig: auðvelt

Leiðangur um hraunbreiður Gönguferð um aldagamlar hraunbreiður vestan við Bláa Lónið, inn í hjarta friðlýsts landsvæðis sem er ríkt af jarðfræðilegum undrum. Gangan hefst við Retreat og liðast síðan um tvö samleitin hraun, Illahraun og Eldvarpahraun, og liggur gegnum ótrúlegt sjónarsvið eldstöðvakerfa.

Vegalengd: 9,5 km Tímalengd: 2 klst. 30 mín. Erfiðleikastig: miðlungs

Töfrandi útsýnisganga Gengið er upp á topp á þessu 243 metra háa móbergsfelli sem varð til á ísöld við gos undir jökli. Við það myndaðist mikil sigdæld á toppi fjallsins en þar setti breski herinn upp bækistöð í seinni heimsstyrjöldinni sem enn má sjá ummerki eftir. Efst á fjallinu eru nokkur möstur, það hæsta er um 40 metra hátt. Frábært útsýni er af fjallinu yfir jarðhitasvæðin í kring, stóran hluta Reykjaness auk endalausrar víðáttu hafsins. Í fjarska má sjá dáleiðandi útlínur hins sögufræga Snæfellsjökuls handan við flóann. Þrjár miserfiðar leiðir eru upp á fjallið sem allar liggja að sama staðnum með frábæru útsýni.

A: 10 km / 3 tímar / auðvelt B: 12,5 km / 4 tímar / miðlungs C: 7 km / 2 tímar / erfitt (brattur slóði) Hækkun: 229 m

AFÞREYING

Kvikan Grindavík Kvikan er auðlinda- og menningarhús staðsett í Grindavík, heimabæ Bláa Lónsins. Grindavík er fræg fyrir útgerð gegnum aldirnar og hefur verið eitt helsta verkunarpláss saltfisks allt fram á þennan dag. Það þarf varla að taka það fram að Lava restaurant í Bláa Lóninu fær allan sinn ferska fisk frá Grindavík. Kvikan býður upp á einstaka upplifun og innsýn í heim fiskveiðanna með sýningu um saltfisk þar sem áherslan er á söguna, skipin, veiðarnar og daglegt líf sjómanna fyrr á öldum. Auk sýningarinnar um saltfiskinn geta gestir skoðað sýningu sem fjallar um orku jarðarinnar; jarðhitavirkni, jarðskjálfta og eldsumbrot. Fróðleg og skemmtileg afþreying sem hentar allri fjölskyldunni.

FJÓRHJÓLAFERÐIR Það er ævintýri líkast að aka um hraunbreiður, svartar sandstrendur, rauða malarvegi og undurfurðulegt fjalllendi sem minnir á tunglið. Stórskemmtilegt ferðalag sem skilur mikið eftir sig of fær hjartað til slá örar. (Vinsamlega athugið: skilyrði er að hafa gilt ökuskírteini).

HESTAFERÐIR Kannaðu Reykjanesskagann með ferðamáta gamla tímans, sitjandi á hestbaki. Farið er um töfrandi eldfjallalendur og riðið eftir hrífandi strandlengjum. Upplifðu stórbrotið landslagið í reiðtúr á íslenskum hesti sem býr yfir ótrúlegum styrk og einstaklega ljúfu geðslagi. Tilvalin afþreying fyrir fjölskyldur með börn sem vilja kynnast íslenska hestinum.

VÍKINGAHEIMAR Víkingaheimar er safn í Reykjanesbæ sem leggur megináherslu á sögu víkinganna. Þekktasti hluturinn á safninu er eftirlíking af Gaukstaðaskipinu sem fannst í Noregi árið 1882. Þetta víkingaskip ber nafnið Íslendingur og sigldi um síðustu aldamót yfir Atlantshafið til L‘Anse aux Medows á Nýfundnalandi og þaðan til New York í tilefni þess að þúsund ár voru liðin frá landafundum Leifs Eiríkssonar. Gestir safnsins geta einnig skoðað sýninguna Víkingar Norður-Atlantshafsins sem unnin var í samstarfi við Smithsonian-stofnunina í Washington D.C. Þetta safn er heimsóknarinnar virði fyrir þá sem vilja fræðast um líf víkinga og kynna sér hluti sem þeim tengjast og hafa fundist við fornleifarannsóknir á Íslandi.

ROKKSAFN ÍSLANDS Reykjanesbær er þekktur fyrir að vera uppeldisbær margra vinsælustu tónlistarmanna og hljómsveita landsins. Í Keflavík hefur Rokksafn Íslands tekið saman sögu dægurtónlistar á Íslandi svo úr verður heillandi og fjölskylduvæn gagnvirk. Safnið er byggt upp í kringum tímalínu í sögu íslenskrar tónlistar, allt frá 19. aldar klassík til stjarna dagsins í dag á borð við Björk, Of Monsters and Men, SigurRós, Kaleo og marga fleiri. Keflavík hefur undanfarna áratugi gjarnan verið kölluð „Bítlabærinn“ í daglegu tali. Fullkomin áfangastaður og fyrir alla rokkara, stóra sem smáa.

SKESSAN Í HELLINUM Skessan flutti úr fjallinu sínu til Reykjanesbæjar á Ljósanótt 2008 og situr nú sofandi í ruggustól í Svartahelli við smábátahöfnina í Gróf. Þar hefur skessan búið sér notalegan helli með góðu útsýni yfir Keflavíkina og Faxaflóann. Skessan er höfundaverk Herdísar Egilsdóttur sem skrifað hefur 16 sögur um Siggu og skessuna í fjallinu en sú nýjasta fjallar einmitt um flutninginn til Suðurnesja.

HIN FULLKOMNA FJÖLSKYLDUFERÐ

Reykjanesið er stuttri akstursfjarlægð frá höfuðborgarasvæðinu og því kjörinn áfangastaður fyrir fjölskyldur í leit að ævintýrum í vetrarfríinu. Hægt er hefja förina með draugasögu við Gunnuhver, halda síðan í fjölskyldumyndatöku við fallega appelsínugula vitann við Stafnes. Þegar allir eru sáttir með myndina er mikilvægt að kitla hláturtaugarnar og kíkja í heimsókn til Skessunnar í hellinum. Næst væri gaman að koma við hjá Brimkatli og líta ótrúlegt náttúruundur augum, heitan pott fyrir tröllskessur! Að lokum er svo mikilvægt að taka endurnærandi stopp í Bláa Lóninu og leyfa sér að fljóta inn í sögur og ævintýri dagsins. Sköpum hlýjar minningar saman. 

Aðrar sögur

Blue Lagoon

Hvað gerir Bláa Lónið að einu af undrum veraldar?

Blue Lagoon

Húðmeðferð Bláa Lónsins

In-water Massage

Nudd ofan í Bláa Lóninu: Söguágrip

Afþreying í nágrenni Bláa Lónsins

Blue Lagoon

Bláa Lónið Umhverfisfyrirtæki ársins 2021

Blue Lagoon

Vatnið í Bláa Lóninu: gagnleg áhrif af „gjöf jarðvarmans“

Bláa Lónið Norðurljósavegur 9 240 Grindavík Sjá á korti

+354 420 8800

Hafa samband

Mín bókun