Sjá allar upplifanir

7 rétta matseðill á Moss með vínpörun

Ógleymanleg matarupplifun á Moss með vínpörun.

Blue Lagoon
Lengd
Day experience
Árstíðir
Allt árið
Aldurstakmark
12 ára
Staðsetning
Reykjanes

Einstök matarupplifun með vínpörun

Matarupplifunin samanstendur af sex árstíðarbundnum réttum sem yfirmatreiðslumeistari okkar, Aggi Sverrisson, hefur sett saman ásamt matreiðsluteymi Moss Restaurant.

Hver réttur er paraður með framúrskarandi árgöngum, völdum af Thibaut Jacquet, yfirvíngerðarmanni hjá hinu virta Domaine Bonneau du Martray sem er staðsett í víngerðarsvæðinu Côte de Beaune í Búrgúndarhéraði í Frakklandi – einu víngerðinni í Búrgúnd sem framleiðir vín sitt aðeins með þrúgum af Grand Cru vínekrum.

Njóttu veitinga og valinna vína á heimsmælikvarða í ógleymanlegri matarupplifun í hjarta eins af 25 undrum veraldar.

Um Moss Restaurant

Veitingastaðurinn Moss er einn sá fremsti á Íslandi og fékk þá einstöku viðurkenningu að hljóta Michelin stjörnu árið 2023. Á veitingastaðnum má njóta magnaðs útsýnis yfir hraunbreiðuna sem umlykur Bláa Lónið.

Matreiðslumeistarar Moss gleðja bragðlaukana með ljúffengum réttum úr fersku hráefni úr íslenskri náttúru – frá fjalli að fjöru. Hægt er að velja á milli fimm og sjö rétta samsettra seðla sem eru breytilegir eftir árstíðum eða vegan matseðils.

Blue Lagoon

Bláa Lónið Norðurljósavegur 9 240 Grindavík Sjá á korti

+354 420 8800

Hafa samband

Mín bókun