Sólstöðutónleikar í Bláa Lóninu

Bláa Lónið x Hipsumhaps halda tónleika á sumarsólstöðum 21. júní. Njóttu þín í botn á lengsta degi ársins. 

Bóka

Blue Lagoon Iceland, Midnight sun
Blue Lagoon

Lónið verður opið til kl. 1 eftir miðnætti þann 21. júní þannig að þú hefur nægan tíma til þess að láta líða úr þér og njóta þín í óviðjafnanlegu umhverfi. 

Hipsumhaps kemur þrisvar fram um kvöldið—kl. 20:30, 21:45 og 23:30—og því ekkert mál að skipuleggja heimsóknina þannig að þú getir notið þess að fá þér máltíð á Lava eða mætt snemma og bókað dásamlegt nudd í vatni.  

Inn á milli tónaflóðsins getur þú svo prófað Samflot þér að kostnaðarlausu og allur búnaður verður á staðnum. Svo er um að gera að prófa alla maskana á maskabarnum og  drekka í sig stemninguna á þessum lengsta degi ársins. 

Sólarmegin í lífinu

Sumarsólstöður eru með gleðilegri kvöldum ársins. Það verður því margt annað í boði auk tónleikanna.

Innifalið

  • Aðgangur að Bláa Lóninu til kl. 1 eftir miðnætti þann 21. júní

  • Hipsumhaps kemur þrisvar fram um kvöldið—kl 20:30, 21:45 og 23:30

  • Samflot (á meðan pláss leyfir)

  • Þrír maskar á maskabarnum 

  • Tveir drykkir að eigin vali   

  • Afnot af handklæði og baðsloppi

Tónaflóð á sólstöðum

Ekki missa af þessum einstöku tónleikum með Hipsumhaps 21. júní. 

Hápunktar kvöldsins

Njóttu þess að prófa samflot og maska á milli þess sem þú gleymir þér í tónlistinni.

Sjáumst á sólstöðum   

Gerðu þér dagamun og njóttu tónleika og ýmissa upplifana í Bláa Lóninu á lengsta degi ársins.

Bóka

Bláa Lónið Norðurljósavegur 9 240 Grindavík Sjá á korti

+354 420 8800

Hafa samband

Mín bókun