Spurningaleikur Bláa Lónsins á Vísindavöku 2023
Vinnsla persónuupplýsinga
Einn vinningshafi verður dreginn úr pottinum þegar leiknum lýkur þann 2. október. Vinningshafi mun vinna aðgang fyrir sig og fjölskyldu sína (að hámarki 6 manns) í Bláa Lónið.
Til þess að við getum haft samband við vinningshafa þegar leiknum lýkur þarf Bláa Lónið hf. að skrá nöfn þátttakenda, og nöfn og netföng forráðamanna þeirra. Þær upplýsingar kallast persónuupplýsingar og Bláa Lónið hf. ber ábyrgð á því að vinnsla þeirra sé í samræmi við íslensk lög um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga. Við munum ekki nota þær persónuupplýsingar sem þú samþykkir að deila með okkur vegna þátttöku í leiknum í neinu öðru skyni en því að hafa samband við vinningshafa, og að því loknu verður öllum persónuupplýsingum sem þátttakendur deila með okkur í tengslum við leikinn eytt. Við munum ekki deila persónuupplýsingum um þig og/eða þinn forráðamann með neinum öðrum. Ef þú vilt ekki að Bláa Lónið hf. skrái persónuupplýsingar um þig og/eða þinn forráðamann, getur þú hætt við að taka þátt í leiknum.
Þeir sem vilja fræðast meira um persónuupplýsingar og vinnslu þeirra geta skoðað persónuverndarstefnu Bláa Lónsins hf. Þar er að finna upplýsingar um hvern þú getur haft samband við vegna vinnslu persónuupplýsinga um þig, um rétt þinn til að fá aðgang að þínum persónuupplýsingum, láta leiðrétta þær, eyða þeim eða takmarka vinnslu þeirra, réttinn til að leggja fram kvörtun hjá Persónuvernd ef þú ert ósátt/ur við það hvernig við vinnum persónuupplýsingar um þig, og fleira.
Related items
Persónuverndarstefna