Njóttu líðandi stundar

Í tilefni Iceland Airwaves 2023 blésum við til samstarfs við tvo upprennandi íslenska tónlistarmenn. Í sameiningu vildum við hvetja hátíðargesti og gesti lónsins til að hægja á, muna að njóta og fara heim með ógleymanlegar minningar í farteskinu. Til þess fengum við tónlistarfólkið til að segja frá sinni reynslu af tónsköpun, ræða um innblástur og deila aðferðum til að nálgast innri frið og ró.

Elín Hall

Elín Hall er íslensk söng- og leikkona. Hún hóf tónlistarferilinn 11 ára gömul þegar hún spilaði á gítar fyrir gesti í fertugsafmæli mömmu sinnar og hefur haldið áfram að semja tónlist allar götur síðan. Í hennar huga er getan til að taka úr sambandi og nálgast innri ró lykillinn að innblæstri og sköpun. Elín gaf út nýja plötu, heyrist í mér?, þann 3. nóvember 2023.

„Að standa á sviði, þetta er eins og einhver hugleiðsla, að komast í ástand þar sem þú ert bæði opin en samt líka búin að byrgja þig að einhverju leyti.“

Myrkvi

Myrkvi er listamannsnafn Magnúsar Arnar Thorlacius. Sem barn æfði Magnús á fiðlu en tónlistarferillinn fór fyrst á flug fyrir alvöru þegar hann sigraði Músíktilraunir árið 2014 ásamt Yngva Holm undir hljómsveitarnafninu Vio. Þeir Magnús og Yngvi gáfu út plötuna Early Warning í nafni Myrkva þann 27. október 2023. Titillag plötunnar kom út fyrr um sumarið en því hefur verið lýst sem „tesopa í vínglasi“.

“Að semja lag er útrás fyrir mér. Þegar ég sem, þá þarf ég algjört næði og að geta helgað mig því.”

Stoltur styrktaraðili Iceland Airwaves

Við höfum verið einn helsti styrktaraðili Iceland Airwaves um árabil. Samstarf ársins 2023 hafði tvíþættan tilgang. Annars vegar að sýna þessari líflegu og fjölbreyttu íslensku tónlistarhátíð, sem og upprennandi tónlistarfólki, stuðning í verki. Hins vegar tilheyrði verkefnið stærra markmiði sem stendur okkur hjá Bláa Lóninu mjög nærri og felst í að efla og auka vellíðan. 

Bláa Lónið Norðurljósavegur 9 240 Grindavík Sjá á korti

+354 420 8800

Hafa samband

Mín bókun