Upplifun sem á sér engan líka

Moss Restaurant býður gestum upp á ógleymanlega kvöldstund laugardaginn 14. nóvember þar sem einstök matargerð og sjaldgæf vín mætast.

Þar fáum við öflugan liðsauka frá Akrame Benallal sem er kokkur á tveggja stjörnu Michelin-veitingastaðnum Akrame í París, ásamt Maison Trimbach, einum vinsælasta vínframleiðanda Alsace-héraðsins.

Einstök matargerð á heimsmælikvarða

Akrame Benallal er þekktur fyrir skapandi og síbreytilega nálgun í matargerð þar sem ástríða, forvitni og spennandi nýjungar ráða för.

Þetta eina kvöld mun hann ásamt yfirkokki Moss, Agga Sverrissyni, skapa matseðil þar sem tvær ólíkar nálganir mætast í fullkomnu samspili við sérvalin vín frá Maison Trimbach. Matseðillinn verður aðeins í boði þetta eina kvöld sem þú vilt sannarlega ekki missa af.

Handbragð kynslóðanna í hverju glasi

Maison Trimbach var stofnað árið 1626 og er einn elsti og virtasti vínframleiðandinn í Alsace héraðinu. Í gegnum tólf kynslóðir hefur fjölskyldan lagt áherslu á framleiðslu vína sem einkennast af hreinleika, nákvæmni og einstakri þroskagetu, úr þrúgum frá bestu vínræktarsvæðum héraðsins.

Gestgjafi kvöldsins er Jean Trimbach, fulltrúi 12. kynslóðar fjölskyldunnar. Hann hefur starfað hjá vínhúsinu frá árinu 1985 og orðið einn helsti talsmaður Maison Trimbach og vína frá Alsace. Jean mun leiða gesti Moss í gegnum þekktustu vínin þeirra, segja frá og veita einstaka innsýn í 400 ára sögu fyrirtækisins.

Bókanir

Fyrir fyrirspurnir og bókanir, vinsamlegast hafið samband við [email protected]

Dagsetning 14. nóvember Staðsetning Moss veitingastaður á The Retreat hótelinu Norðurljósavegur 11 240 Grindavík

Tímasetning 18:00 Verð á mann 69.800 kr., vínpörun innifalin

Moss Restaurant at the Retreat Hotel

The Retreat - Bláa Lónið Norðurljósavegur 11 240 Grindavík Sjá á korti

+354 420 8700

Hafa samband

Mín bókun