Nudd í Bláa Lóninu | Bláa Lónið

Nudd í Bláa Lóninu

Slökun. Endurnæring. Vellíðan.

Einstök upplifun

Nuddmeðferð ofan í Bláa Lóninu nærir líkama, huga og sál.

Slökunarnudd

Slakandi og djúpt nudd undir berum himni á dýnu sem flýtur á jarðsjónum. Nuddað er með einstakri nuddolíu úr húðvörulínu Bláa Lónsins.

30 mínútur
ISK 15 900
60 mínútu - verð frá
ISK 24 900

Slökunarnudd með salt- og kísil-heilskrúbbi

Nuddið hefst á djúphreinsandi kísilsaltskrúbbi yfir allan líkamann sem örvar blóðrásina, styrkir húðina og skilur við líkamann sléttan, ljómandi og endurnærðan.

Kísilsaltskrúbbnum er fylgt eftir með 30 eða 60 mínútna nuddi með djúpri slökun sem framkvæmt er með Blue Lagoon nuddolíu. Njóttu þess að komast á annað stig líkamlegrar og tilfinningalegrar vellíðunar meðan þú flýtur þyngdarlaus á græðandi vatni lónsins.

60 mínútur
ISK 31 900
90 mínútur
ISK 40 900

Endurnærandi líkamsmeðferð

Upplifunin nær nýjum hæðum með þessu nuddi ofan á fljótandi dýnu í Bláa Lóninu – 120 mínútna nudd sem endurnærir og gerir húðina hreina og ljómandi fallega.

120 mínútur
ISK 49 900

Þannig fer nuddið fram

Þú hittir nuddarann þinn í nuddlóninu og hann útskýrir ferlið. Þú leggst á bakið á flotdýnu og hlýtt teppi er breitt yfir þig. Nuddið fer fram með hendur nuddarans milli dýnunnar og líkamans.

Dýnan ber gesti óháð þyngd og hæð og mælt er með algerri slökun svo nuddið virki sem best. Gestir sem mæta í sundbol eru beðnir um að draga sundfötin niður að mjöðmum til að bera bakið fyrir nudd en eru samt sem áður huldir með teppinu meðan nuddið stendur yfir.

Nudd í vatni - Algengar spurningar

Upplifðu Bláa Lónið