Hvað gerir Bláa Lónið að einu af undrum veraldar?

Bláa Lónið: náttúruundur
Árið 2012 birti National Geographic grein um 25 náttúruundur sem vert væri að heimsækja, undir yfirskriftinni „Wonders of the World“. Þökk sé sérstöðu vatnsins var Bláa Lónið valið sem eitt af þessum undrum og er þar í góðum félagsskap annarra náttúruundra. Þar ber helst að nefna hina stórbrotnu norsku firði, Victoria fossanna í Suður-Afríku, áströlsku kóralrifin og Baikal-vatnið í Serbíu.
Bláa Lónið er í raun jarðsjór sem finnst á 2000 metra dýpi. Þessi jarðsjór samanstendur af salt- og ferskvatni og er ríkur af kísli, þörungum og steinefnum.
Bláa Lónið: töfrar vatnsins
Hvað gerir Bláa Lónið svo sérstakt að það hlaut þessa viðurkenningu? Svarið liggur í vatninu.
Jarðsjórinn, sem er grunn undirstaða vatnsins í Bláa Lóninu, er að uppleggi 70% saltvatn og 30% ferskvatn og er hann ríkur af kísil, þörungum og steinefnum. Vegna þessarar einstöku samsetningar hefur vatnið þá töfrandi eiginleika að gefa húðinni góða næringu, styrkir hana og endurnærir.
Upplifðu töfra Bláa Lónsins á eigin skinni.
