Uppbygging við Rauðukamba

Verið er að reisa 40 herbergja hótel ásamt Fjallaböðunum við Rauðukamba í Þjórsárdal. Uppbygging er komin vel á veg og áætluð verklok eru sumarið 2028.

Fjallaböðin Þjórsárdal

Fjallaböðin munu bjóða upp á einstakt útsýni yfir náttúruperluna Þjórsárdal og vera sambyggð hótelinu sem verið er að reisa.

Gestastofa Þjórsárdals og hálendisins 

Í Gestastofu Þjórsárdals verða veitingar, móttaka Fjallabaðanna, upplýsingamiðstöð og gagnvirk sýning um sögu Þjórsárdals.

Uppbygging við Selhöfða 

Við Selhöfða verða smáhýsi og tjaldsvæði með góðu aðgengi í fallegri náttúru.