Blue Lagoon

Verslun

Promotional Code

Frí heimsending þegar pantað er í gegnum vefverslun Blue Lagoon.is – gildir fyrir allt Ísland

Blue Lagoon Shop

Verslun í flugstöð
 

Verslun í flugstöðÍ Flugstöð Leifs Eiríkssonar er að finna glæsilega Blue Lagoon verslun sem býður upp á úrval húðvara, gjafapakkninga auk spennandi fylgihluta.
Verslunin er opin alla daga frá klukkan 05:30- 17:30*
*athuga skal að opnunartími er breytilegur og fer eftir flugumferð hverju sinni. 

Í versluninni er einnig að finna spa svæði þar sem boðið er upp á orkumeðferðir fyrir hendur og fætur. Meðferðirnar byggja á hreinum Blue Lagoon jarðsjó og Blue Lagoon húðvörum. Þær hreinsa húðina og veita vellíðan og slökun. 20 og 50 mínútna meðferðir eru fáanlegar. Vinsamlegast bókið tíma á staðnum eða í síma 420-8859.



Orkumeðferð fyrir hendur og handleggi (20 mín)

Orkumeðferð fyrir hendur og handleggiÁhrifarík orkumeðferð sem hreinsar og nærir húðina og gefur henni fallega áferð. Hendurnar eru baðaðar upp úr steinefnaríkum Blue Lagoon jarðsjó og síðan nuddaðar upp úr sérstakri blöndu af saltkristöllum og náttúrulegum kísil sem hreinsa húðina og færa henni orku. Meðferðinni lýkur með nuddi. Einstök meðferð sem mýkir hendurnar og dregur úr litamismun og öldrunarmerkjum húðarinnar.

Verð kr. 4.000,-



Orkumeðferð fyrir fætur (20 mín)

Orkumeðferð fyrir fæturOrkugefandi meðferð fyrir þreytta og bólgna fætur. Fæturnir eru baðaðir upp úr steinefnaríkum Blue Lagoon jarðsjó og síðan nuddaðir með kísil sem hreinsar húðina og gefur henni jafna og fallega áferð. Fæturnir eru síðan nuddaðir með orkugefandi nuddolíu. Meðferðin örvar blóðflæðið og stuðlar að auknu jafnvægi og vellíðan ásamt því að veita fullkomna slökun.

Verð kr. 4.500,-



De luxe - orkumeðferð fyrir fætur (50 mín)

De luxe orkumeðferð fyrir fæturEinstök orkumeðferð fyrir þreytta og bólgna fætur. Fæturnir eru baðaðir upp úr steinefnaríkum Blue Lagoon jarðsjó og síðan nuddaðir og vafðir með kísil sem hreinsar húðina og gefur henni jafnari áferð. Meðferðin endar með nuddi þar sem nuddað er upp úr orkugefandi nuddolíu. Meðferðin örvar blóðflæðið og stuðlar að auknu jafnvægi og vellíðan ásamt því að veita fullkomna slökun.

Verð kr. 8.500,-